Lögreglan handtók 71 árs stuðningsmann Everton þegar liðið tók á móti Manchester City í gær. Hann hafði verið með kynþáttaníð í garð Antoine Semenyo, leikmanns City.
Áhorfendur og öryggisverðir tilkynntu að maðurinn hefði hrópað kynþáttaníð og Everton aðstoðar lögregluna við að rannsaka málið.
Áhorfendur og öryggisverðir tilkynntu að maðurinn hefði hrópað kynþáttaníð og Everton aðstoðar lögregluna við að rannsaka málið.
Maðurinn hefur verið látinn laus úr haldi með þeim skilyrðum að hann má ekki vera í nálægð við neina íþróttaleikvanga.
Í yfirlýsingu segir Everton að hegðun af þessu tagi sé ekki liðin hjá félaginu en þetta er í annað sinn á tímabilinu sem svona mál kemur upp sem tengist Semenyo.
Þegar hann var hjá Bournemouth tilkynnti leikmaðurinn eftir fyrstu umferðina að hann hefði orðið fyrir kynþáttafordómum frá stuðningsmanni Liverpool.




