Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 16:08
Kári Snorrason
Samantekt
Langlífustu þjálfararnir í Bestu og Lengjudeildinni
Hallgrímur Jónasson tók við KA árið 2022 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins.
Hallgrímur Jónasson tók við KA árið 2022 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull hefur verið í þrjú ár í Garðabænum sem aðalþjálfari.
Jökull hefur verið í þrjú ár í Garðabænum sem aðalþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Aleksandar Linta tók við Eyjamönnum í upphafi árs.
Aleksandar Linta tók við Eyjamönnum í upphafi árs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nenad Zivanovic er sá langlífasti.
Nenad Zivanovic er sá langlífasti.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Magnús Már tók við Aftureldingu þrítugur að aldri.
Magnús Már tók við Aftureldingu þrítugur að aldri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Jónasson er langlífasti þjálfari Bestu deildarinnar en hann hefur verið við stjórnvölinn hjá KA í tæp fjögur ár. Þar á eftir kemur Jökull Elísabetarson sem hefur stýrt Stjörnunni sem aðalþjálfari í þrjú ár. Fimm þjálfarar eru nú á sínu fyrsta heila tímabili með sín lið.

Í Lengjudeildinni er starfsaldurinn að meðaltali hærri. Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, hefur stýrt liðinu í rúm sjö ár, þar á eftir kemur Magnús Már Einarsson en hann tók við Aftureldingu veturinn 2019.

Meðaltal starfsaldurs þjálfara í Bestu deildinni: 1,67 ár.
Meðaltal starfsaldurs þjálfara í Lengjudeildinni: 2,07 ár.

Undirritaður tók saman alla þjálfara í Bestu- og Lengjudeildinni og raðaði þeim upp eftir starfsaldri. Listana tvo má sjá hér fyrir neðan.



Besta deildin:
Hallgrímur Jónasson, KA
Ráðinn 23. september 2022 (1320 dagar)

Jökull Elísabetarson, Stjarnan
Ráðinn 10. maí 2023 (1091 dagur)

Haraldur Freyr Guðmundsson, Keflavík
Ráðinn 10. ágúst 2023 (999 dagar)

Sigurður Heiðar Höskuldsson, Þór
Ráðinn 17. október 2023 (931 dagur)

Rúnar Kristinsson, Fram
Ráðinn 25. október 2023 (923 dagar)

Óskar Hrafn Þorvaldsson, KR
Ráðinn 14. ágúst 2024 (629 dagar)

Sölvi Geir Ottesen, Víkingur R.
Ráðinn 20. janúar 2025 (470 dagar)

Lárus Orri Sigurðsson, ÍA
Ráðinn 21. júní 2025 (318 dagar)

Ólafur Ingi Skúlason, Breiðablik
Ráðinn 20. október 2025 (197 dagar)

Hermann Hreiðarsson, Valur
Ráðinn 2. nóvember 2025 (184 dagar)

Jóhannes Karl Guðjónsson, FH
Ráðinn 26. nóvember 2025 (160 dagar)

Aleksandar Linta, ÍBV
Ráðinn 12. janúar 2026 (113 dagar)



Lengjudeildin:
Nenand Zivanovic, Ægir
Ráðinn 30. september 2018 (2774 dagar)

Magnús Már Einarsson, Afturelding
Ráðinn 9. nóvember 2019 (2369 dagar)

Jóhann Birnir Guðmundsson, ÍR
Ráðinn 29. september 2022 (1314 dagar)

Sigurvin Ólafsson, Þróttur R.
Ráðinn 26. október 2023 (922 dagar)

Rúnar Páll Sigmundsson, Grótta
Ráðinn 14. nóvember 2024 (537 dagar)

Ray Anthony Jónsson, Grindavík
Ráðinn 16. október 2025 (201 dagur)

Heimir Guðjónsson, Fylkir
Ráðinn 27. október 2025 (190 dagar)

Davíð Smári Lamude, Njarðvík
Ráðinn 5. nóvember 2025 (181 dagur)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, HK
Ráðinn 7. nóvember 2025 (179 dagar)

Brynjar Björn Gunnarsson, Leiknir
Ráðinn 7. nóvember 2025 (179 dagar)

Daniel Badu, Vestri
Ráðinn 8. nóvember 2025 (178 dagar)

Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson, Völsungur
Ráðnir 7. apríl 2026 (28 dagar)
Slapp
banner
banner