Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 17:30
Kári Snorrason
Mikael mættur aftur og klár í að byrja í grannaslagnum
Frá landsliðsæfingu í október.
Frá landsliðsæfingu í október.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mikael Neville Anderson sneri aftur í lið Djurgarden um helgina eftir meiðsli og kom við sögu þegar liðið vann stórsigur á Gautaborg, 6:0.

Mikael spilaði um þrjátíu mínútur og lagði hann upp fimmta mark liðsins.

Þetta var fyrsti deildarleikur Mikaels með Djurgarden þetta árið en hann meiddist aftan í læri í 1:1 jafntefli Íslands og Haítí í vináttulandsleik 31. mars.

„Þetta hafa verið mjög erfiðar vikur. Ég hef lagt gríðarlega hart að mér til að koma til baka. Endurhæfingin hefur verið mikil og þetta hefur verið mjög erfitt,“ sagði Mikael í samtali við FotbollDirekt.

Djurgarden mætir AIK á sunnudaginn sem er grannaslagur.

„Ef þú spyrð mig þá segi ég já, ég get byrjað þann leik. En það er undir Jani komið,“ sagði Mikael og vísaði þar til Jani Honkavaara, þjálfara Djurgården
Slapp
banner
banner