Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   sun 05. júní 2016 23:30
Magnús Þór Jónsson
Heimir: Þú þarft að æfa til að geta eitthvað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir þjálfari FH var sáttur við sigur sinna manna á Breiðablik í kvöld:

"Flottur sigur á gríðarlega öflugu Blikaliði sem hefur verið að spila vel upp á síðkastið.  Þetta er erfiður útivöllur og flott að vinna þennan".

Það var varnarleikur FH sem skilaði þremur stigum í kvöld.

"Við ætluðum að byrja sterkt og mér fannst það ganga vel.  Við náðum inn marki snemma og fengum möguleika til að bæta við.  Svo ætluðum við að verja markið okkar og mér fannst við loka vel á Blikaliðið, sem fékk ekki eitt færi fannst mér.  Það er öflugur varnarleikur.

Kassim og Beggi ná vel saman, þeir bera virðingu hver fyrir öðrum.  Emil og Davíð þekkjast vel og vita hvað þeir eiga að gera."


Deildin er býsna jöfn.

"Ég sagði það fyrir mót að það væru fleiri góð lið núna en oft áður. Liðin reita stig hvert af öðru og þetta er jafnt.  Svo er eitt lið sem kemur á óvart og nú eru það Víkingar sem hafa spilað virkilega vel, eru með góðan þjálfara og flotta umgjörð.  Þetta stefnir í jafnt mót."

EM framundan þýðir nokkurra daga hlé á leikjum í deildinni.  Hvað ætla FH ingar sér að gera í því fríi?

"Við höldum áfram að æfa.  Þú þarft að æfa til að geta eitthvað í þessum leik, það er ekkert flókið"



Slapp
banner