Framundan eru landsleikir, heimaleikur gegn Moldóvu á laugardaginn og útileikur gegn Albaníu á þriðjudaginn.
Hvernig mun Erik Hamren stilla liðinu upp á laugardag? Umsjónarmenn Innkastsins hér á Fótbolta.net reyndu að fara í skó Svíans, köstuðu fram sínum pælingum og völdu sín lið.
Á meiðslalistanum má meðal annars finna Arnór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason.

Gunnar Birgisson: „Það er ómögulegt að sníða stakk eftir vexti fyrir laugardaginn eftir að nýr þjálfari tók við Moldóvum. Ég hugsa að Sovét maðurinn stilli upp í agaðan 4-4-2. Ísland mætir aggresíft til leiks, enda ekkert annað í stöðunni."
Tómas Þór Þórðarson: „Þetta er liðið sem ég held að Hamren muni stilla upp."
Magnús Már Einarsson: „Mótherjarnir eru næst lakasta liðið í riðlinum og því vona ég að 4-4-2 verði fyrir valinu. Ísland verður meira með boltann í leiknum en oft áður og það eiga eftir að koma hellingur af boltum inn á teiginn. Framlínan verður frá Selfossi en Kolbeinn Sigþórsson kemur líklega inn á. Hann gæti síðan byrjað gegn Albaníu á þriðjudaginn. Gylfi og Aron verða saman á miðjunni eins og í þá gömlu góðu og Birkir vinstra megin líkt og gegn Tyrkjum í júní. Rúnar Már hefur átt flotta kafla með landsliðinu undanfarið og hann byrjar hægra megin. Varnarlínan verður síðan eins og í júní."
Elvar Geir Magnússon: „Ég spái því að Ari spili öfugan bakvörð því hann er betri sóknarlega en Hjörtur og við erum jú á heimavelli gegn Moldóvu. Hannes, Emil og Birkir standa sig alltaf í bláu, sama hvernig staðan er hjá þeim utan landsliðsins."
Athugasemdir