Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   mán 06. janúar 2014 14:06
Elvar Geir Magnússon
Heimir Hallgríms: Úr miklum og stórum hópi að velja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var íslenski landsliðshópurinn fyrir vináttuleik gegn Svíum í Abu Dhabi tilkynntur. Ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða og stærstur hluti hópsins spilar í Skandinavíu. Fjórir leikmenn úr Pepsi-deildinni eru í hópnum.

„Það eru margir nýliðar og margir leikmenn með fáa leiki þó að við blöndum því saman með leikreyndari mönnum. Það er gaman að segja frá því að þegar við fórum að skoða listann yfir leikmenn sem eru að spila í Skandinavíu þá voru það 41. Það er úr miklum og stórum hópi að velja fyrir utan þá menn sem eru í Pepsi-deildinni," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari við Fótbolta.net.

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörðurinn ungi í KR, var valinn í hópinn.

„Hann er búinn að spila vel með U21-landsliðinu og við förum svolítið eftir þeirri frammistöðu. Við teljum hann vera framtíðarmarkmann."

Athygli vekur að Kristján Gauti Emilsson, sóknarmaður FH, er valinn en þessum unga leikmanni gekk erfiðlega að finna leiðina í markið á síðasta ári.

„Emil (Atlason) er meiddur en hann og Kristján Gauti hafa náð vel saman með U21-landsliðinu. Þeir áttu mjög flottan leik gegn Frökkum. Hann skoraði samt ekki mikið í deildinni í sumar en hann er mjög efnilegur leikmaður sem á bjarta framtíð," sagi Heimir sem er fullur tilhlökkunar fyrir því að halda út til Abu Dhabi.

„Það er gaman að fara í svona leik á svona stað. Það er 40 þúsund manna völlur. Ég efast um að það verði uppselt en það verður gaman að koma þangað."
Slapp
banner