Juventus 4 - 0 Pisa
1-0 Andrea Cambiaso ('54 )
2-0 Kephren Thuram ('65 )
3-0 Kenan Yildiz ('75 )
4-0 Jeremie Boga ('93)
1-0 Andrea Cambiaso ('54 )
2-0 Kephren Thuram ('65 )
3-0 Kenan Yildiz ('75 )
4-0 Jeremie Boga ('93)
Juventus tók á móti nýliðum Pisa í lokaleik kvöldsins í efstu deild ítalska boltans og var staðan markalaus eftir skemmtilegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora.
Luciano Spalletti gerði tvöfalda skiptingu í leikhlé og tók Juventus öll völd á vellinum í síðari hálfleik. Bakvörðurinn Andrea Cambiaso skoraði af stuttu færi eftir góðan undirbúning frá Francisco Conceicao og Kenan Yildiz, áður en Khephren Thuram fylgdi stangarskoti eftir með marki.
Yildiz innsiglaði svo sigurinn með afar snyrtilegu marki eftir undirbúning frá Conceicao og bætti Jérémie Boga fjórða markinu við í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 4-0.
Þetta var langþráður sigur fyrir Juve eftir hörmulegt gengi síðustu vikna. Liðið er með 50 stig eftir 28 umferðir, einu stigi frá meistaradeildarsæti.
Pisa virðist vera á leið niður aftur í Serie B. Liðið er níu stigum frá öruggu sæti með tíu leiki eftir óspilaða.
Athugasemdir

