Í dag var mikið af leikjum í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM á næsta ári.
Þar er helst að frétta að Þýskaland rúllaði yfir Noreg og Ítalía gerði jafntefli við Danmörku.
Þær þýsku skoruðu fjögur mörk í Noregi á meðan Ítalir voru sterkari aðilinn gegn Dönum.
Í íslenska riðlinum hafði Spánn betur gegn Úkraínu, en þær úkraínsku stóðu í heimsmeisturunum og töpuðu að lokum 1-3.
Svíþjóð gerði þá markalaust jafntefli í Serbíu og lentu Frakkar ekki í vandræðum gegn Póllandi.
Holland rétt marði Írland í jöfnum slag og bar Slóvenía sigur úr býtum gegn Austurríki.
Þá fóru einnig leikir fram í B- og C-deildum undankeppninnar, þar sem Finnland, Belgía, Portúgal, Skotland, Sviss og Tékkland eru meðal þjóða sem unnu sína leiki.
Noregur 0 - 4 Þýskaland
Ítalía 1 - 1 Danmörk
Úkraína 1 - 3 Spánn
Serbía 0 - 0 Svíþjóð
Frakkland 4 - 1 Pólland
Holland 2 - 1 Írland
Slóvenía 1 - 0 Austurríki
England 2 - 0 Ísland
Finnland 3 - 1 Lettland
Belgía 5 - 0 Ísrael
Portúgal 4 - 0 Slóvakía
Wales 6 - 1 Svartfjallaland
Albanía 1 - 5 Tékkland
Skotland 7 - 0 Lúxemborg
Malta 1 - 4 Sviss
N-Írland 0 - 1 Tyrkland
Kasakstan 0 - 1 Belarús
Bosnía 13 - 1 Liechtenstein
Kýpur 0 - 4 Rúmenía
Ungverjaland 1 - 0 Aserbaídsjan
N-Makedónía 3 - 0 Andorra
Litháen 0 - 0 Eistland
Króatía 0 - 1 Kósovó
Gíbraltar 0 - 5 Búlgaría
Grikkland 2 - 0 Færeyjar
Athugasemdir


