Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
De Paul og Messi afgreiddu DC United
Mynd: EPA
Mynd: EPA
DC United 1 - 2 Inter Miami
0-1 Rodrigo De Paul ('17)
0-2 Lionel Messi ('27)
1-2 Tai Baribo ('75)

Lionel Messi og Rodrigo De Paul voru meðal byrjunarliðsmanna Inter Miami sem lagði DC United að velli í þriðju umferð nýs tímabils í bandarísku MLS deildinni. Inter ætlar að reyna að verja deildartitilinn sinn.

Argentínsku landsliðsfélagarnir skoruðu mörkin í sigrinum með tíu mínútna millibili í fyrri hálfleiknum.

Heimamenn í liði DC voru talsvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik en náðu aðeins að skora eitt mark, svo lokatölur urðu 1-2.

Inter er með 6 stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili. DC er með 3 stig.

Luis Suárez var ónotaður varamaður í liði Inter og gat Sergio Reguilón ekki tekið þátt vegna hnémeiðsla.

Hinn 38 ára gamli Messi, sem á afmæli um miðjan júní, leiddi Inter til sigurs í MLS deildinni á síðustu leiktíð.

Hann er ríkjandi heimsmeistari með Argentínu og er jafnframt leikjahæsti leikmaður í sögu HM. Búist er við að hann verði mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Argentínu á HM í Norður-Ameríku komandi sumar, sem verður sjötta heimsmeistaramótið sem hann tekur þátt í sem keppandi.

Allt bendir til þess að Messi og Ronaldo verði fyrstu fótboltamenn sögunnar til að taka þátt í sex mismunandi heimsmeistaramótum á ferli sínum. Þeir hafa báðir keppt á HM 2006, 2010, 2014, 2018 og nú síðast á HM 2022.
Athugasemdir
banner
banner