Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
banner
   lau 07. mars 2026 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Marie og Daníela í sigurliðum
Mynd: Molde
Mynd: Heimasíða Álasunds
Það voru nokkrar íslenskar fótboltakonur sem mættu til leiks í æfingaleikjum dagsins hjá skandinavísku félögunum sem eru á undirbúningstímabilinu.

Marie Rekdal Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Molde sem rúllaði yfir Kil/Hemne. Staðan var 0-4 í leikhlé og urðu lokatölur 0-7.

Daníela Dögg Guðnadóttir var í byrjunarliði Álasunds í 3-0 sigri gegn Arna-Björnar og var Sigdís Eva Bárðardóttir í byrjunarliði Norrköping í markalausu jafntefli gegn Örebro.

Brenna Lovera byrjaði þá í tapleik Brann gegn Kristiansund.

FCK lagði AGF að velli í sjö marka leik og sigraði Vålerenga að lokum Fortuna Hjörring frá Danmörku.

Kil/Hemne 0 - 7 Molde

Aalesund 3 - 0 Arna-Björnar

Norrköping 0 - 0 Örebro

Brann 1 - 2 Kristiansund

FCK 4 - 3 AGF

Vålerenga 3 - 1 Fortuna Hjörring

Athugasemdir
banner