Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Mikey Moore besti ungi leikmaður tímabilsins
Mynd: Rangers
Hinn 18 ára gamli Mikey Moore hlaut nafnbótina besti ungi leikmaður tímabilsins í efstu deild í Skotlandi.

Moore er hjá Rangers á láni frá Tottenham og skoraði hann 6 mörk og gaf 2 stoðsendingar í 28 deildarleikjum með Rangers.

Moore er samningsbundinn Tottenham til 2030 en hann þykir gríðarlega mikið efni og hefur verið lykilmaður upp unglingalandslið Englands.

Hann leikur sem kantmaður að upplagi og hefur skorað 28 mörk í 42 landsleikjum.
Slapp
banner
banner