Hrifinn af Achraf Hakimi
Uli Höness, heiðursforseti og stjórnandi hjá FC Bayern, hefur tjáð sig um samningsviðræður félagsins við Konrad Laimer.
Höness segir að Laimer, sem hefur spilað 131 leik á þremur árum hjá Bayern, sé með alltof háar launakröfur.
Laimer, sem getur leikið í báðum bakvarðarstöðunum og á miðjunni, er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Þýskalandsmeistarana.
Hann er með 3 mörk og 12 stoðsendingar í 43 leikjum á tímabilinu.
„Þegar maður les í fjölmiðlum um launakröfurnar hans er mikilvægt að setja þær í samhengi. Konny er frábær leikmaður sem ég hef miklar mætur á en hann er ekki Maradona eða Kane," sagði Höness við DAZN.
„Leikmenn eins og hann verða að samþykkja að það eru takmörk. Hann er á mjög góðum launum nú þegar."
Bayern tekur á móti Frakklands- og Evrópumeisturum PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Staðan er 4-5 fyrir PSG eftir ótrúlegan fyrri leik í París.
Höness var spurður ef hann mætti velja einn leikmann úr liði PSG til að fá til Bayern, hver það væri.
„Achraf Hakimi. Við myndum kaupa hann án þess að hugsa okkur tvisvar sinnum um, hann myndi passa mjög vel inn í liðið okkar."



