Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum!
Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
   lau 07. júní 2014 15:06
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Eyþór Helgi: Ert að vinna með byssurnar
Eyþór Helgi Birgisson.
Eyþór Helgi Birgisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyþór Helgi Birgisson, framherji Víkings Ólafsvíkur, skoraði sigurmark Víkings Ólafsvíkur á erfiðum útivelli gegn Grindavík í 1. deild karla á dögunum.

Eyþór Helgi var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag og var hann að vonum ánægður með sigurinn.

,,Það er smá þreyta í mönnum en annars er liðið bara gott. Þetta var 50/50 leikur sem hefði getað endað báðu megin og jafntefli hefði líklega verið sanngjarnt, en við erum sáttir með þrjú stig," sagði Eyþór Helgi á X-inu í dag.

,,Níu stig eftir fjóra leiki og búnir með KA, Skagann og Grindavík úti. Þegar þú horfir til baka, þá hefðum við átt að skora í þessum Selfoss leik á venjulegum degi en það féll ekki með okkur. En við erum mjög sáttir með níu stig úr fjórum leikjum."

Víkingur hefur enn ekki spilað heimaleiki á sínum heimavelli í Ólafsvík en það fer að styttast í það.

,,Við bíðum eftir því að komast þangað og gerum það líklega á mánudaginn gegn Þrótti, og það er bara léttir. Við viljum spila heimaleikina okkar heima, ekki klukkutíma í burtu," sagði Eyþór.

Eyþór tók athyglisvert kúreka-fagn í Grindavík þegar hann skoraði og var spurður út í það:

,,Þetta er semsagt einkahúmor hjá nokkrum félögum, við köllum þetta kúrekann. Þetta voru byssur. Þú ert að vinna með byssurnar og síðan ertu að vinna með skúffurnar í munninum, við áttum þarna létt spjall ég og félagi minn og hann spurði mig hvort ég væri nokkuð búinn að gleyma "cowboy-inum". Ég sagði nei og hann sagði að ég tæki hann ef ég skora."

Viðtalið má hlusta á hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner