Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 18:55
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Jafnt í botnslagnum í Mosfellsbæ
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Hvíti riddarinn 3 - 3 Þróttur V.
0-1 Tómas Þórðarson ('18 )
0-2 Anton Breki Óskarsson ('19 )
1-2 Óðinn Már Guðmundsson ('25 )
1-3 Eiður Jack Erlingsson ('36 )
2-3 Óðinn Már Guðmundsson ('65 )
3-3 Guðbjörn Smári Birgisson ('79 )

Hvíti riddarinn tók á móti Þrótti Vogum í eina leik dagsins í B-deild karla í Lengjubikarnum.

Gestirnir úr Vogum komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik þegar Tómas Þórðarson og Anton Breki Óskarsson skoruðu sitthvort markið með stuttu millibili.

Óðinn Már Guðmundsson minnkaði muninn niður í eitt mark en Eiður Jack Erlingsson svaraði með að endurheimta tveggja marka forystu fyrir gestina, svo staðan var 1-3 í hálfleik.

Heimamenn í Mosfellsbæ gerðu fjórfalda breytingu á liðinu sínu í hálfleik og minnkuðu muninn tuttugu mínútum síðar. Aftur var Óðinn Már á ferðinni svo staðan var orðin 2-3 fyrir lokakaflann.

Það var á 79. mínútu sem Guðbjörn Smári Birgisson náði að gera jöfnunarmark fyrir Hvíta riddarann og meira var ekki skorað, svo lokatölur urðu 3-3.

Liðin mættust í botnslag riðils 3 í B-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner