HK 2 - 2 Keflavík
0-1 Eva Dís Sighvatsdóttir ('63)
1-1 Alma Mathiesen ('71)
1-2 Eva Dís Sighvatsdóttir ('88)
2-2 Karlotta Björk Andradóttir ('94)
0-1 Eva Dís Sighvatsdóttir ('63)
1-1 Alma Mathiesen ('71)
1-2 Eva Dís Sighvatsdóttir ('88)
2-2 Karlotta Björk Andradóttir ('94)
HK og Keflavík áttust við í eina leik dagsins í Lengjubikar kvenna og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik.
HK gat jafnað KR á toppi B-deildar með sigri en lenti undir á 63. mínútu, þegar Eva Dís Sighvatsdóttir náði forystunni fyrir gestina úr Keflavík.
Alma Mathiesen jafnaði metin fyrir heimakonur en Eva Dís náði að endurheimta forystuna á lokamínútum venjulegs leiktíma.
Keflvíkingar vonuðu að þarna væri sigurmark leiksins á ferðinni, en svo var ekki því Karlotta Björk Andradóttir náði að gera annað jöfnunarmark fyrir HK í uppbótartíma.
Lokatölur urðu því 2-2 og er HK í öðru sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir, einu stigi meira en Keflavík og þar að auki með leik til góða.
Athugasemdir


