,,Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur. Við þurftum að taka þrjú stig í dag til að halda þeim fyrir aftan okkur og það tókst," sagði Trausti Sigurbjörnsson markvörður Þróttar eftir 2-1 sigur liðsins á KF í 1. deildinni í dag.
Valdan Vukovic miðjumaður KF fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks og eftir ryskingar í kjölfarið fóru bæði Milos Glogovac og Hlynur Hauksson sömu leið.
Valdan Vukovic miðjumaður KF fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks og eftir ryskingar í kjölfarið fóru bæði Milos Glogovac og Hlynur Hauksson sömu leið.
,,Þetta var pjúra rautt spjald á leikmanninn sem að klippir Jón Konráð niður," sagði Trausti.
Trausti reyndi að róa Milos Glogovac niður þegar hann var að rífast við Magnús Þórisson dómara eftir rauða spjaldið á Vukovic.
,,Ég tók Milos úr umferð þegar hann reyndi að fara í Magga. Ég held að hann hefði kýlt hann ef ég hefði ekki tekið Milos hálstaki. Það var eins gott að maður er búinn að vera að pumpa í ræktinni, ég hefði ekki ráðið við hann ef ég væri pínulítill."
KF minnkaði muninn undir lokin þegar Þórður Birgisson átti skot sem fór í stöngina og þaðan aftan í hælinn á Trausta og inn fyrir línuna.
,,Þetta er allan daginn sjálfsmark á mig. Ég týndi boltanum og Kalli öskraði á mig að hreyfa mig ekki. Þetta á eftir að rata í einhvern sjálfsmarka lista á YouTube."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

























