Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. apríl 2020 08:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fernandes: Trúin sem félagið og stjórinn hafði fékk mig til Manchester
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes var með spurt og svara á Twitter síðu sinni í dag og var spurður hvað það var sem sannfærði hann um að koma til Manchester United í janúar.

Fernandes sagði það hafa verið trú Solskjær á sér sem hafi verið lykilatriði í því að vilja koma til Manchester.

„Ég fann að Solskjær hafði trú á mér og það skipti mig miklu máli. Mögulega hefði það verið nóg ef félagið hefði haft trú á mér og svo hefði ég fengið trú stjórans. Lykilatriði var ekki að vera lofað byrjunarliðssæti, ég þurfti bara trú frá stjóranum."

„Stjórinn þarf að sjá það að ég sé að gera mitt besta í öllum leikjum. Ég þarf að leggja mig 200% fram til að sýna að ég vilji spila meira en aðrir. Allir vilja sýna sig en þú verður að sýna meira en aðrir. Þetta ýtir öllum áfram."
Athugasemdir
banner
banner