,,Þetta voru ekki úrslitin sem við vonuðumst eftir, þetta eru gífurleg vonbrigði," sagði Ingólfur Örn Ingólfsson fyrirliði Álftanes eftir markalaust jafntefli við Afríku í 4. deildinni í kvöld.
,,Við ætluðum okkur að mæta hér í kvöld og taka þrjú stig. En þetta er ótrúlegt. Við kláruðum ekki færin okkar og það segir sitt þegar upp er staðið."
,,Afríka voru segir, vörðust vel og ég hef aldrei séð þá svona skipulagða. Þeir voru með skipulag. Við verðum að bíta í súra eplið við vorum ekki nógu góðir í dag. Ég klúðraði tveimur dauðafærum sem ég á að klára. Þetta er ekki það sem við sóttumst eftir og rosalegt áfall í þessari baráttu um úrslitasætið."
Saint Paul Edeh leikmaður Afríku sagði í sífellu 'I love you' inni á vellinum, var Ingólfur að taka það til sín?
,,Ég tók mikið eftir því og öskraði meira að segja á einn leikmann, 'I love you Hreiðar'. Hann er mikill leiðtogi og það munar miklu að hafa hann í liðinu."























