Carlos Alcaraz leikmaður Southampton meiddist þegar hann renndi sér á hnjánum í fögnuði eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Leicester um síðustu helgi.
Alcaraz er tvítugur Argentínumaður og ekki er ljóst hvort hann geti spilað gegn Manchester United á sunnudaginn.
Alcaraz er tvítugur Argentínumaður og ekki er ljóst hvort hann geti spilað gegn Manchester United á sunnudaginn.
„Charly er orðinn betri. Hann gat æft í morgun og við verðum að sjá hvort hann geti verið í hópnum á sunnudag. Það kemur í ljós á morgun," segir Ruben Selles, stjóri Southampton.
„Hann er ungur leikmaður og verður að læra af þessu. Það brutust út miklar tilfinningar á þessari stundu. Hann er smá skömmustulegur, sjáum hvort hann verði með eða ekki."
„Ef hann verður ekki með þá verður hann allavega klár í leikinn gegn Brentford í miðri viku. Við erum allir að læra saman og þetta er lærdómur fyrir hann."
Athugasemdir