Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. mars 2023 17:27
Elvar Geir Magnússon
Settir í bann eftir kókaínmyndband úr stúkunni
Mynd: Skjáskot
West Ham hefur sett stuðningsmenn í bann sem komu við sögu í kókaínmyndbandi sem fór í mikla dreifingu um samfélagsmiðla.

Á myndbandinu sést einstaklingur sjúga hvítt duft af skalla annars manns í stúkunni á London leikvangnum, við mikla ánægju þeirra sem voru í kring.

West Ham hefur fordæmt hegðun mannana og ógilt ársmiða þeirra svo þeir geta ekki mætt á leiki liðsins, hvorki heimaleiki né útileiki það sem eftir er af tímabilinu. Mögulegt er að þeir verði bannaðir til frambúðar.

Kókaínnotkun hefur aukist mikið meðal vallargesta á Englandi og vandamálin því tengd verið mikið í umræðunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner