Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   mán 10. ágúst 2015 22:20
Lárus Ingi Magnússon
Haukur Ingi: Ýmislegt tvísýnt sem féll ekki með okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við fáum mark í andlitið á okkur á 42. mínútu og við höfum ansi oft í sumar fengið á okkur mark í lok fyrri hálfleiks. Oft höfum við brotnað og komið vængbrotnir í síðari hálfleikinn en ég er ánægður með hvernig við komum í síðari hálfleikinn í dag. Ég er hundfúll að hafa ekki náð í þrjú stig." sagði Haukur Ingi Guðnason þjálfari Keflvíkinga eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Fjölnir

Haukur Ingi var ekki allt of ánægður með Pétur Guðmundsson dómara leiksins.

„Það voru ótrúleg atriði sem var ekki dæmt og það voru ótrúleg atriði sem var dæmt á. Dómararnir eru mannlegir og dæma ekki eins og maður sér þetta sjálfur eða fólk upp í stúku. Það var ýmislegt tvísýnt sem féll ekki með okkur í dag."

Farid Zato, Haraldur Freyr Guðmundsson og Sigurbergur Elísson voru allir fjarri góðu gamni vegna meiðsla í dag.

„Það er nokkuð óljóst hvernig staðan á þeim er. Ég er nokkuð viss um að þeir komi ekki í næsta leik en fari fljótlega að týnast inn, einn og einn. Það hafa verið ótrúlega mikil meiðsli og við þurfum að skoða hvað er hægt að gera betur í þeim efnum."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner