Kanadíski framherjinn Jonathan David er markahæsti leikmaður franska félagsins Lille á þessari öld og bætti hann þar með met belgíska leikmannsins Eden Hazard.
David skoraði þrennu í 3-3 jafntefli liðsins við Lyon í frönsku deildinni í gær.
Hann er nú kominn með 52 mörk fyrir Lille frá því hann kom til félagsins frá Gent fyrir þremur árum.
Enginn leikmaður Lille hefur skorað fleiri mörk en David á þessari öld en hann bætti met Eden Hazard frá 2012.
Hazard skoraði 50 mörk fyrir Lille á fimm árum sínum með aðalliði félagsins áður en Chelsea keypti hann fyrir 32 milljónir punda.
David er einn eftirsóttasti framherji Evrópu og verður gaman að sjá hvað hann gerir í sumar.
Athugasemdir