Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. mars 2023 22:52
Brynjar Ingi Erluson
Messi sá fyrsti í sögunni til að leggja upp 300 mörk
Mynd: EPA
Argentínski snillingurinn Lionel Messi lagði upp 300. mark sitt fyrir félagslið sín er Paris Saint-Germain lagði Brest 2-1 í frönsku deildinni í kvöld en hann er sá eini í sögunni sem hefur náð þessum áfanga.

Útlit var fyrir að PSG myndi gera jafntefli við Brest en undir lok leiks tapaði Brest boltanum og átti Nuno Mendes konfektsendingu á Messi sem stakk honum inn fyrir á Kylian Mbappe.

Franski sóknarmaðurinn gerði svo það sem hann gerir best, sólaði markvörðinn áður en hann lagði boltann í autt markið.

Stoðsending Messi var sú 300. á ferlinum fyrir félagslið sín en enginn leikmaður sögunni hefur afrekað það. Ágætis afrek það.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner