Það er um mánuður í að boltinn fer að rúlla í Bestu deildinni og síðasta ótímabæra spáin verður opinberuð í dag í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir málin og með þeim í hljóðveri verður Ingólfur Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins.
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir málin og með þeim í hljóðveri verður Ingólfur Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins.
Í þættinum verður farið yfir helstu fréttir úr boltanum og þá verður rætt um landsliðið sem hefur leik í undankeppni EM í Bosníu síðar í þessum mánuði. Hópur verður opinberaður á miðvikudag.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir