Maria Moran er spænskur íþróttafréttablaðamaður og er hún fyrrum unnusta Jasper Cillessen. Moran sakar Hollendinginn um að reyna kúga sig á hverjum degi og þá segir hún að þessi fyrrum markvörður Ajax og Barcelona hafi hóta að leka einkamyndum af henni ef hún færi ekki í fóstureyðingu.
Moran fæddi stúlku í hittifyrra en það tók langan tíma að tilkynna það að Cillessen væri faðir barnsins.
Cillessen er sagður hafa sleppt því að taka þátt í sjúkrakostnaði og þá á hann að hafa hunsað dóttur sínar þegar hún var veik og lá inn á spítalanum.
„Mér er sama um hann og ég hugsa bara um dóttur minnar. Maður sem spyr aldrei um dóttur sína, meira að segja þegar að hún lá inni á sjúkrahúsi og átti erfitt með að anda, á ekki skilið neina virðingu,” sagði Moran um Cilessen.
Cillessen spilar með NEC í Hollandi en hann á að baki 63 leiki með landsliði Hollands.