,,Ef þú spilar eins og við gerðum í fyrri hálfleik þá er mjög erfitt að stríða Grindavík," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari KF eftir 2-0 tap í Grindavík í kvöld.
,,Við vorum hikandi í fyrri hálfleik og í báðum mörkunum vorum við hikandi inni í teignum og gefum færi á okkur. Ég held að það sé alveg sama á móti hvaða liði þú spilar á móti í 1. deildinni þá verður þér refsað fyrir það og hvað það á móti þessu liði sem Grindavík er með á þessum velli, það gengur engan veginn."
Lárus Orri gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og var ósáttur með sína menn.
,,Ég var mjög óánægður með þá. Menn voru hikandi og að bíða eftir að hlutirnir gerðust. Við höfum ekki efni á því."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.






















