Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 12. mars 2023 20:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allegri: Pogba verður að vera sterkur og þolinmóður
Mynd: EPA

Paul Pogba er ekki í leikmannahópi Juventus gegn Sampdoria í ítölsku deildinni en leikurinn hófst kl. 19:45.


Pogba er að koma til baka eftir meiðsli en hann var ekki í leikmannahópi liðsins sem vann Freiburg 1-0 í Evrópudeildinni í vikunni þar sem hann mætti seint á liðsfund fyrir leikinn.

Max Allegri stjóri Juventus útskýrði fjarveru hans fyrir leikinn í kvöld.

„Hann var að taka aukaspyrnur í morgun og fann fyrir eymslum í nára. Þetta var góð æfing, hann var að fara spila í kvöld en svona er lífið. Hann verður að vera sterkur og þolinmóður svo hann geti komið aftur sem leikmaðurinn sem hann var," sagði Allegri.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner