Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. mars 2023 17:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti: Verðum að spila með sama viðhorfi og í fyrri leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid sendi leikmönnum liðsins skilaboð fyrir seinni leikinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni sem fram fer á miðvikudagskvöldið.


Fyrri leiknum á Anfield lauk með 5-2 sigri Real Madrid en Ancelotti segir að einvígið sé langt því frá búið.

„Við höfum reynslu frá því í fyrra gegn Chelsea. Við erum með þriggja marka forystu og þess vegna erum við sigurstranlegri. Staðreyndin er sú að við eigum eftir að spila 90 mínútur," sagði Anchelotti.

„Við verðum að spila með sama viðhorfi og í fyrri leiknum. Við erum með forskotið. Við getum ekki hugsað um það, við verðum að spila 90 mínútur á fullu."

Real vann Chelsea í Meistaradeildinni í 8 liða úrslitum á síðustu leiktíð en fyrri leikurinn fór 3-1 fyrir Real á Stamford Bridge en Chelsea vann 3-2 á Bernabeu.


Athugasemdir
banner
banner
banner