Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Orlando City í MLS-deildinni, lagði upp fyrsta mark sitt í deildinni í nótt er lið hans gerði 1-1 jafntefli við Guðlaug Victor Pálsson og hans menn í D.C. United.
Íslenska U21 árs landsliðsmaðurinn var í byrjunarliði Orlando í annað sinn á tímabilinu en hann er að nýta tækifærin vel.
Hann lagði upp mark Orlando á 53. mínútu leiksins. Kyle Smith kom með laglega fyrirgjöf frá hægri á Dag sem skallaði boltann á fjærstöngina og þar lúrði Duncan McGuire sem kom boltanum yfir línuna.
Lagleg stoðsending hjá Íslendingnum en dugði þó ekki til sigurs því United jafnaði metin tíu mínútum fyrir leikslok.
Guðlaugur Victor Pálsson sat allan tímann á varamannabekk United eftir að hafa byrjað fyrstu tvo leikina í deildinni.
Liðin eru hlið við hlið í Austur-deildinni. Orlando er með 5 stig í 7. sæti en United í 8. sæti með 4 stig.
Things you absolutely love to see ???? @DuncanMcGuire5 | #VamosOrlando pic.twitter.com/ovKRBFGuyH
— Orlando City SC (@OrlandoCitySC) March 12, 2023
Athugasemdir