Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. mars 2023 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Havertz: Kærastan hefur átt erfitt undanfarnar vikur og mánuði
Mynd: EPA

Kai Havertz hafði spilað sjö leiki í röð án þess að skora mark áður en hann skoraði gegn Dortmund í vikunni. Þá skoraði hann einnig í gær þegar Chelsea sigraði Leicester.


Havertz sagði frá því í viðtali að erfiðleikarnir innan vallar voru farnir að hafa áhrif á lífið utan vallar.

„Fótbolti er lífið, ef maður tapar leik mun maður ekki eiga auðvelt líf. Allir hafa átt erfitt heima fyrir, sérstaklega kærastan mín sem hefur átt erfitt undanfarnar vikur og mánuði. Ég held að hún sé ánægð núna og ég líka," sagði Havertz með bros á vör.

„Ef maður á slæman vinnudag líður manni ekki vel. Fótbolti er leikur þar sem það er mikil pressa á manni. Við viljum gera stuðningsmennina glaða en ef það tekst ekki verður það ekki gott fyrir þig."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner