Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 12. mars 2023 22:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Magni lagði Hött/Huginn - 19 mörk í þremur leikjum
Kristinn Þór Rósbergsson
Kristinn Þór Rósbergsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni og Höttur/Huginn mættust í riðli 4 í B deild Lengjubikarsins í Boganum á Akureyri í dag.


Magni komst í 2-0 en Birkir Már Hauksson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark undir lok leiksins og klóraði í bakkann fyrir Hött/Huginn.

Magni nældi þarna í sín fyrstu stig eftir þrjá leiki en Höttur/Huginn er með sex stig í 2. sæti eftir fjóra leiki.

Þá voru tveir leikir í C deildinni en þar voru skoruð 16 mörk. KÁ valtaði yfir Uppsveitir í riðli eitt þar sem lokatölur urðu 6-2. KÁ er á toppnum með fullt hús eftir þrjá leiki en Uppsveitir án stiga eftir tvo leiki.

Í riðli sex vann Álftanes 5-3 sigur á Álafossi. Sömu sögu má segja þar, Álftanes er á toppnum með 9 stig eftir þrjá leiki en Álafoss án stiga eftir tvo leiki.

Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4

Magni 2 - 1 Höttur/Huginn
1-0 Kristinn Þór Rósbergsson ('18 )
2-0 Páll Veigar Ingvason ('78 )
2-1 Birkir Már Hauksson ('89 , Sjálfsmark)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 1

KÁ 6 - 2 Uppsveitir
1-0 Júlíus Breki Þóruson ('4 , Sjálfsmark)
2-0 Brynjar Bjarkason ('15 )
2-1 Guðjón Örn Sigurðsson ('22 )
3-1 Brynjar Bjarkason ('49 )
4-1 Kormákur Marðarson ('50 )
5-1 Bjarki Sigurjónsson ('53 )
5-2 Helgi Valdimar Sigurðsson ('65 )
6-2 Bjarki Sigurjónsson ('78 )

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 6

Álafoss 3 - 5 Álftanes
0-1 Andri Janusson ('2 )
0-2 Kristján Lýðsson ('7 )
1-2 Sigurður Brouwer Flemmingsson ('11 )
1-3 Andri Janusson ('64 )
1-4 Agon Aron Morina ('68 )
2-4 Sigurður Brouwer Flemmingsson ('73 , Mark úr víti)
3-4 Einar Björn Þorgrímsson ('78 )
3-5 Leó Örn Þórarinsson ('87 )


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner