Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. mars 2023 19:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lopetegui: Höfum verið óheppnir með dómara
Mynd: EPA

Julen Lopetegui stjóri Wolves var ósáttur með að sínir menn hafi ekki fengið vítaspyrnu í 2-1 tapi liðsins gegn Newcastle í kvöld.


Nick Pope markvörður Newcastle tók Raul Jimenez niður í teignum en ekkert var dæmt. Þá hefur VAR verið gagnrýnt fyrir að skipta sér ekki af atvikinu.

„Það skiptir ekki máli hvað mér finnst, við höfum orðið fórnarlömb mistaka gegn Liverpool og í dag. Fyrir mér var þetta vítaspyrna, VAR hefði getað hjálpað dómaranum þarna," sagði Lopetegui.

„Fyrir mér er Nick Pope ótrúlega heppinn. Jimenez vinnur boltann og fyrir mér er þetta víti. Ég trúi ekki að dómarinn hafi ekki gefið vítið og ég trúi ekki að VAR hafi ekki látið hann skoða þetta nánar," sagði Jimmy Floyd Hasselbaink hjá Sky Sports.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner