sun 12. mars 2023 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Xavi ber Lewandowski saman við Messi og Ronaldinho
Mynd: EPA
Xavi, þjálfari Barcelona, lét stór orð falla á blaðamannafundi fyrir leik liðsins við Athletic Bilbao i gær en hann ákvað þar að bera Robert Lewandowski saman við Lionel Messi og Ronaldinho.

Messi, sem er talinn einn og ef ekki besti fótboltamaður allra tíma, bar Börsunga á herðum sér til fjölda ára áður en hann fór til Paris Saint-Germain. Ronaldinho var ekki síðri og óumdeilanlegt að þarna séu tveir af bestu leikmönnum allra tíma.

Xavi spilaði með þeim báðum og ákvað að ganga svo langt að líkja Lewandowski við þá tvo.

Lewandowski hefur smellpassað inn í lið Barcelona og komið að 31 marki í jafnmörgum leikjum. Xavi gæti ekki verið ánægðari með pólska framherjann.

„Robert er náungi sem ég ber saman við Ronaldinho og Messi. Hann hefur breytt hugarfari liðsins og hann sá alfarið um það sjálfur. Hann er leiðtogi og það er mjög mikilvægt að hann sé í samskiptum við menn,“ sagði Xavi á blaðamannafundi fyrir leikinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner