Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 21:50
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Stórsigur Blika í sögulegum nágrannaslag
Blikar fagna í kvöld.
Blikar fagna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birta Georgsdóttir skoraði tvö.
Birta Georgsdóttir skoraði tvö.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 5 - 1 HK
1-0 Birta Georgsdóttir ('12 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('22 )
3-0 Birta Georgsdóttir ('23 )
3-1 Loma McNeese ('24 )
4-1 Agla María Albertsdóttir ('58 )
5-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('67 )
Lestu um leikinn

Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna með því að valta yfir nágranna sína í HK, 5-1, á Kópavogsvelli í kvöld.

Leikurinn var sögulegur fyrir bæði félög en kvennaliðin voru að mætast í fyrsta sinn og það á 70 ára afmæli Kópavogsbæjar.

Birta Georgsdóttir fór hamförum í fyrri hálfleik. Hún skoraði á 12. mínútu eftir að hún hljóp inn í hræðilega sendingu til baka, fór framhjá Kaylie Bierman, markverði HK, og setti boltann í netið.

Tíu mínútum síðar lagði Birta upp annað markið eftir gott þríhyrningsspil við Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur sem skoraði síðan með frábæru skoti í slá og inn.

Mínútu síðar sendi Agla María Albertsdóttir boltann í gegn á Birtu sem gerði annað mark sitt í leiknum. Svakaleg frammistaða hjá Birtu.

Fjörið hélt áfram og voru það HK-ingar sem náðu að koma boltanum í netið á 24. mínútu. Ísabel Rós Ragnarsdóttir kom boltanum á Loma McNeese sem skoraði.

Edith Kristín Kristjánsdóttir gat skorað tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks, en Kaylie varði frá henni í fyrra skotinu og þá setti Edith boltann í stöngina í seinna skotinu.

Blikar héldu áfram að keyra á HK-inga í þeim síðari. Berglind Björg Þorvaldsdóttir átti sláarskot og nokkrum mínútum síðar bætti Agla María við fjórða markinu með snyrtilegu skoti.

Edith hélt áfram að vaða í færum. Hún átti sláarskot á 64. mínútu, en náði loks að skora þremur mínútum síðar er Kaylie var í miklum vandræðum eftir sendingu sem kom inn á teiginn og skoraði Edith í opið markið.

Þægilegur og öruggur sigur Breiðabliks sem er síðasta liðið inn í undanúrslitin. Breiðablik, FH, ÍBV og Valur verða í undanúrslitunum, en Valur á möguleika á að verja titilinn í ár.
Athugasemdir