Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fös 13. júní 2025 09:30
Elvar Geir Magnússon
Meinað að koma til Bandaríkjanna fyrir HM félagsliða
Ayrton Costa.
Ayrton Costa.
Mynd: EPA
Ayrton Costa, varnarmaður argentínska liðsins Boca Juniors, verður ekki með á HM í félagsliða en honum var í tvígang hafnað um vegabréfsáritun.

Costa er 25 ára en árið 2018 var hann bendlaður við tilraun til vopnaðs ráns í heimalandi sínu. Hann fékk skilorðsbundinn dóm 2023 og komst framhjá réttarhöldum. Málið var flokkað sem alvarlegt rán á þéttbýlu svæði og tengt við glæpagengi.

Þá hefur hann einnig verið ákærður fyrir meinta hylmingu á morði á konu en bróðir hans var hinn grunaði.

Þar sem Costa mun ekki geta tekið þátt í mótinu er búist við að Marcos Rojo, 35 ára, komi inn í byrjunarlið Boca en hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Manchester United. Rojo hefur verið notaður að mestu sem varaskeifa á tímabilinu.
Athugasemdir
banner