Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
„Wirtz er stórkostlegur leikmaður sem mun slá í gegn hjá Liverpool“
Mynd: EPA
Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München í Þýskalandi, sér á eftir Florian Wirtz sem hafnaði félaginu til að ganga í raðir Liverpool.

Liverpool er að kaupa Wirtz frá Bayer Leverkusen fyrir 126 milljónir punda, en Bayern og Manchester City voru lengi vel í baráttu um hann áður en Liverpool 'stal' honum.

Eberl, sem gerði allt sem hann gat til að fá Wirtz, segir að Liverpool sé að fá stórkostlegan leikmann.

„Fyrsta hugsun er andskotinn sjálfur. En þegar einar dyr lokast opnast aðrar. Maður endurstillir sig og undirbýr sig aftur fyrir framtíðina.“

„Florian mun slá í gegn hjá Liverpool. Hann er stórkostlegur leikmaður og það er enginn vafi á því,“
sagði hann enn fremur.

Wirtz verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og sá þriðji dýrasti í sögunni. Paris Saint-Germain á metið yfir tvo dýrustu leikmenn allra tíma er félagið keypti Neymar frá Barcelona fyrir 200 milljónir punda og síðan Kylian Mbappe þremur árum síðar frá Mónakó fyrir 166 milljónir.
Athugasemdir
banner