Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Man City ætlar ekki að lána Norðmanninn til Girona
Mynd: Rosenborg
Manchester City ætlar ekki að lána norska miðjumanninn Sverre Nypan til spænska félagsins Girona í sumar, en það skoðar nú aðra möguleika í stöðunni.

Enska félagið er að ganga frá kaupum á hinum 18 ára gamla Nypan frá Rosenborg.

Hann mun kosta Man City um það bil 12 milljónir punda og verður hann lánaður strax út.

Fjölmiðlar greindu frá því að hann færi líklegast til Girona á láni, en Man City hefur nú útilokað þann möguleika.

Félagið er nú að skoða aðra möguleika í stöðunni en City Football Group, eigandi Man City, á tíu önnur félög sem það getur sent hann til og gæti þá jafnvel ákveðið að finna lið sem er ekki í eigu fjárfestingahópsins.
Athugasemdir
banner