Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 09:58
Elvar Geir Magnússon
Liverpool búið að gera 116 milljóna punda samkomulag um Wirtz
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Liverpool hafa gert 116 milljóna punda samkomulag við þýska félagið Bayer Leverkusen um kaup á sóknarmiðjumanninum Florian Wirtz, sem er 22 ára.

Leverkusen fær 100 milljónir punda og svo gæti upphæðin hækkað um 16 milljónir eftir ákvæðum. Hann gæti þá orðið dýrasti leikmaður í sögu Bretlandseyja.

Núverandi met er 107 milljóna punda kaup Chelsea á argentínska miðjumanninum Enzo Fernandez frá Benfica árið 2023.

Manchester City og Bayern München höfðu áhuga á að fá Wirtz en hann er nú á leið til Liverpool.

Wirtz lék sinn fyrsta leik fyrir Leverkusen 17 ára gamall og hefur skorað 57 mörk í 197 leikjum. Hann hjálpaði liðinu að vinna Bundesliguna í fyrsta sinn í sögu félagsins á síðasta ári. Hann hefur skorað sjö mörk í 31 landsleik fyrir Þýskaland.
Athugasemdir