Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 21:41
Brynjar Ingi Erluson
Nunez yfirgefur Liverpool í sumar
Darwin Nunez
Darwin Nunez
Mynd: EPA
Darwin Nunez, framherji Liverpool, mun yfirgefa félagið í sumarglugganum en þetta segir Fabrizio Romano á samfélagsmiðlum í kvöld.

Nunez hefur ekki náð að finna sig hjá Liverpool á þeim þremur árum sem hann hefur verið hjá félaginu.

Vinnslan og ástríðan hefur svo sannarlega verið til staðar hjá úrúgvæska landsliðsmanninum, en ákvarðanataka og færanýting er það sem hefur farið í taugarnar á Arne Slot og stuðningsmönnum Liverpool.

Romano segir það öruggt að Nunez verði seldur í sumar en mikill áhugi er frá Sádi-Arabíu og Ítalíu.

Al Hilal ætlar á eftir honum eftir að hafa misst af Victor Osimhen og Viktor Gyökeres.

Ítalska meistaraliðið Napoli er einnig sagt vera að skoða það að fá Nunez, sem er 25 ára gamall. Napoli hefur verið í sambandi við Nunez, en leikmaðurinn er sagður bæði opinn fyrir því að fara til Napoli og Sádi-Arabíu.

Liverpool ætlar að styrkja sóknarlínuna í sumar. Hugo Ekitike, Nick Woltemade og Alexander Isak eru allir sagðir á lista hjá Liverpool
Athugasemdir
banner
banner