Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fös 13. júní 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
HM félagsliða um helgina - Messi spilar opnunarleikinn
Mynd: EPA
HM félagsliða fer af stað um helgina en þetta er í fyrsta sinn sem mótið er haldið að sumri til og er töluvert veglegra en það hefur verið áður, en sigurvegarinn fær 100 milljónir punda í vasann.

Lionel Messi og félagar í Inter Miami spila opnunarleikinn gegn Al Ahly frá Egyptalandi um miðnætti aðfaranótt sunnudags.

Á sunnudeginum fara síðan fram þrír leikir. Bayern München mætir Auckland City frá Nýja-Sjálandi, Paris Saint-Germain spilar við Atlético Madríd í Evrópuslag og þá spilar brasilíska liðið Palmeiras við Porto frá Portúgal.

Botafogo og Seattle Sounders mætast klukkan 02:00 aðfaranótt mánudags.

Leikir dagsins:

Laugardagur (Aðfaranótt sunnudags):
00:00 Al Ahly Cairo - Inter Miami FC

Sunnudagur:
16:00 Bayern - Auckland City
19:00 PSG - Atletico Madrid
22:00 Palmeiras - Porto
02:00 Botafogo - Seattle Sounders
Athugasemdir
banner