Heimild: BBC
Thomas Frank var í gær staðfestur sem nýr stjóri Tottenham. Daninn hefur gert frábæra hluti hjá Brentford og fer nú til stærra félags.
„Thomas Frank hefur orð á sér í fótboltanum sem stjóri sem greinir vandamál og finnur lausnir. Nú verður hann að leysa þá óleysanlegu þraut sem Tottenham Hotspur virðist vera," skrifar Phil McNulty, ritstjóri fótboltafrétta hjá BBC.
„Óútreiknanleiki Tottenham sést glögglega í ákvörðun stjórnarformannsins Daniel Levy, sem er vanur að reka stjóra sem vinna ekki titla, með því að reka þann sem að lokum skilaði titli.
Ange Postecoglou batt enda á 17 ára bið félagsins eftir titli með því að vinna Evrópudeildina en liðið endaði í sautjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hann var rekinn.

„Þetta er áhættusöm ákvörðun fyrir Frank, því hann er kominn til Spurs og yfirmaður hans verður Levy. En hann hefur mikla trú á sjálfum sér og þetta eru verðlaun fyrir glæsilegt starf hans hjá Brentford," segir McNulty.
„Frank náði að gera Brentford að stöðugu úrvalsdeildarfélagi með því að spila skemmtilegan fótbolta af mikilli ákefð. Aðrir stjórar hafa hlaðið hann lofi og Pep Guardiola sagði það bara tímaspursmál hvenær hann tæki við stærra félagi. Tíminn er kominn."
„Meistaradeildin bíður og einnig það verkefni að gera Tottenham aftur gildandi í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Leikmannaferill Frank var ekki merkilegur og um tíma vann hann á leikskóla. En þjálfaraferill hans hefur þróast virkilega vel, í gegnum yngri landslið Danmerkur til Bröndby áður en hann varð aðstoðarstjóri Brentford 2016. Hann tók svo við liðinu tveimur árum síðar þegar Dean Smith fór til Aston Villa."
„Vinna Frank hjá Brentford hefur skapað honum marga aðdáendur. Stuðningsmenn Brentford eru sorgmæddir yfir því að hann sé farinn, þó þeir hafi allir vitað að þessi dagur myndi koma."
Athugasemdir