Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska sambandið vill troðfylla þjálfarateymið af goðsögnum
Ítalska sambandið vill fá Gattuso og Buffon ásamt fleiri goðsögnum
Ítalska sambandið vill fá Gattuso og Buffon ásamt fleiri goðsögnum
Mynd: EPA
Ítalska fótboltasambandið er í viðræðum við Gennaro Ivan Gattuso um þjálfarastarf karlalandsliðsins, en sambandið vill fá fleiri goðsagnir á bekkinn fyrir HM.

Gattuso mun funda með ítalska sambandinu í vikunni en eins og staðan er núna er hann líklegastur til að taka við af Luciano Spalletti sem var látinn fara eftir síðasta verkefni, þar sem liðið tapaði óvænt fyrir Noregi, 3-0, en vann síðan Moldóvu í síðasta leik hans.

Gazzetta dello Sport segir að sambandið vilji fá fleiri goðsagnir til að vera með Gattuso á bekknum.

Þar kemur fram að það vilji fá Gianluigi Buffon, Andrea Barzagli, Leonardo Bonucci og Gianluca Zambrotta inn í teymið ásamt því að fá Cesare Prandelli, fyrrum þjálfara landsliðsins, til að taka við starfi sem tæknilegur stjórnandi.

Buffon, Barzagli og Zambrotta urðu allir heimsmeistarar með Ítalíu árið 2006 á meðan Bonucci varð Evrópumeistari árið 2021. Allir áttu goðsagnakenndan feril og gætu miðlað dýrmætri reynslu til leikmannahópsins.
Athugasemdir
banner
banner