
Þórður Þórðarson, þjálfari U19 ára landsliðs kvenna, hefur valið hópinn sem mun spila tvo æfingaleiki síðar í þessum mánuði.
Breiðablik. Stjarnan og Tindastóll eiga flesta fulltrúa eða þrjá talsins.
Það vekur athygli að fimm leikmenn koma úr Lengjudeildinni, en það eru þær Rebekka Sif Brynjarsdóttir, Anna Arnarsdóttir, Salóme Kristín Róbertsdóttir, Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir og Sunna Rún Sigurðardóttir.
Íslenska liðið mætir Finnlandi í fyrri æfingaleiknum þann 25. júní, en það mun síðan ráðast eftir þann leik hver seinni mótherjinn verður. Sá leikur er spilaður 28. júní og eru báðir leikirnir spilaðir í Noregi.
Hópurinn:
Helga Rut Einarsdóttir - Breiðablik
Edith Kristín Kristjánsdóttir - Breiðablik
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Thelma Karen Pálmadóttir - FH
Berglind Freyja Hlynsdóttir - FH
Rebekka Sif Brynjarsdóttir - Grótta
Anna Arnardóttir - Keflavík
Salóme Kristín Róbertsdóttir - Keflavík
Hrefna Jónsdóttir - Stjarnan
Fanney Lísa Jóhannesdóttir - Stjarnan
Sandra Hauksdóttir - Stjarnan
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir - Valur
Sóley Edda Ingadóttir - Valur
Freyja Stefánsdóttir - Víkingur R.
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir - Tindastóll
Elísa Bríet Björnsdóttir - Tindastóll
Birgitta Rún Finnbogadóttir - Tindastóll
Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir - Haukar
Sunna Rún Sigurðardóttir - ÍA
Brynja Rán Knudsen - Þróttur R.
Athugasemdir