Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. janúar 2019 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mata fékk bikar fyrir þátt sinn í góðgerðarstarfsemi
Mynd: Getty Images
Juan Mata, leikmaður Manchester United, er af mörgum talinn einn af vinalegustu knattspyrnumönnum heims og virðist vera vel liðinn hvert sem hann fer.

Fyrir einu og hálfu ári síðan hrinti Mata af stað söfnun fyrir fátæk börn víðsvegar um heiminn.

Hann leggur 1% af launum sínum í verkefnið og hefur fengið fleiri hundruð íþróttamenn til liðs við sig. Verkefnið snýst um að veita fátækum börnum aðgang að fótbolta og öðrum íþróttum.

Fyrir framlag sitt hlaut Mata sérstakan bikar sem Sofia Spánardrottning afhenti honum við hátíðlega athöfn.



Athugasemdir
banner
banner
banner