Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 13. mars 2023 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Bruyne: Ég er gamall maður í þessari íþrótt
Mynd: Getty Images

Kevin de Bruyne hefur verið lykilmaður í liði Manchester City undanfarin ár en hann hefur þurft að sætta sig við að byrja á bekknum í nokkrum leikjum á þessari leiktíð.


Hann byrjaði á bekknum gegn Crystal Palace um helgina í 1-0 sigri en hann kom inn á undir lok leiksins. Hann virðist ekki stressa sig á þessari bekkjarsetu.

„Fólk er með aðrar væntingar til mín en annarra leikmanna. Fólk ætlast til að ég skori og leggi upp í hverjum leik. Mér finnst ég hafa spilað vel, kannski hafa verið færi stoðsendingar en ég held að ég hafi ekki búið til færri færi," sagði De Bruyne.

„Í hvert sinn sem ég stíg út á völl reyni ég alltaf að gera mitt. Mér finnst ég ekki þurfa að gera neitt öðruvísi, ég er gamall maður í þessari íþrótt, ég veit hvernig þetta er. Auðvitað vill maður spila eins mikið og mögulegt er en ef ekki þá gerir maður sitt besta á 10 mínútum og ég gerði það og náði í sigur með liðinu."


Athugasemdir
banner