Það er einn leikur í ítölsku deildinni í kvöld en AC Milan getur farið upp að hlið granna sinna í Inter með sigri á Salernitana.
Milan situr í 4. sæti fyrir leikinn en Inter og Lazio misstígu sig um helgina sem þýðir að Milan getur farið upp fyrir Lazio og jafnað Inter að stigum með sigri í kvöld.
Liðið hafði unnið þrjá leiki í röð í deildinni áður en kom að tapi gegn Fiorentina um síðustu helgi. Þá komst liðið áfram í Meistaradeildinni í vikunni eftir markalaust jafntefli gegn Tottenham.
Salernitana er sex stigum frá fallsæti og getur komið sér í þægilega stöðu með góðum úrslitum í kvöld.
Leikur dagsins
19:45 Milan - Salernitana
Athugasemdir