Það eru öflugir leikir í dag í Þjóðadeildinni en eini leikurinn í A-deild er leikur Hollands og Þýskalands.
Holland og Þýskaland eigast við í toppslag í riðli 1 í A-deildinni en það er eini leikurinn í efstu deildinni í dag.
Slóvakía og Tékkland eigast við í B-deildinni en þessar þjóðir voru sameinaðar til ársins 1993. Írland og Danmörk mætast þá klukkan 18:45 í riðli 4.
Það eru þá fjörugir leikir í C-deildinni en alla leiki má sjá hér fyrir neðan.
Leikir dagsins:
A-deild:
18:45 Holland - Þýskaland (Riðill 1)
B-deild:
13:00 Slóvakía - Tékkland (Riðill 1)
18:45 Írland - Danmörk (Riðill 4)
C-deild:
16:00 Noregur - Slóvenía (Riðill 3)
16:00 Georgía - Andorra (Riðill 1)
16:00 Lettland - Kasakstan (Riðill 1)
16:00 Armenía - Gíbraltar (Riðill 4)
18:45 Makedónía - Lichtenstein (Riðill 4)
18:45 Búlgaría - Kýpur
Athugasemdir