Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 14. mars 2023 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Árni Vill byrjaði í jafntefli
Mynd: Zalgiris Vilnius
Árni Vilhjálmsson, leikmaður Zalgiris í Litháen, var í byrjunarliði liðsins er það gerði 1-1 jafntefli við Kauno Zalgiris í nágrannaslag í úrvalsdeildinni þar í landi.

Blikinn hefur byrjað ágætlega með Zalgiris síðan hann samdi við félagið í síðasta mánuði.

Hann skoraði strax í fyrsta leik og hjálpaði liðinu að vinna Ofurbikarinn en það var einmitt gegn Kauno Zalgiris.

Árni var í byrjunarliðinu annan leikinn í röð í dag er liðið gerði 1-1 jafntefli. Hann fór af velli undir lok leiksins.

Zalgiris er í 4. sæti deildarinnar með 4 stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner