Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. mars 2023 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Man City og Porto eiga heimaleiki
Mynd: Getty Images

Meistaradeildarfjörið heldur áfram í kvöld þegar Porto tekur á móti Inter á meðan Manchester City mætir RB Leipzig.


Um tvo æsispennandi leiki er að ræða þar sem gríðarlega mjóu munar á stöðunni eftir fyrri viðureignirnar.

Englandsmeistarar Man City gerðu jafntefli á útivelli gegn Leipzig á meðan Inter vann heimaleikinn sinn gegn Porto naumlega.

Það eru fjögur lið búin að tryggja sér þátttöku í 8-liða úrslitunum og verða sigurvegarar kvöldsins næstu tveir til að bætast við þann hóp.

FC Bayern, Chelsea, AC Milan og Benfica eru búin að tryggja sig áfram í næstu umferð.

Leikir kvöldsins:
20:00 Porto - Inter (0-1)
20:00 Man City - RB Leipzig (1-1)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner