þri 14. mars 2023 18:21
Brynjar Ingi Erluson
Pirraður Ronaldo komst ekki á blað þriðja leikinn í röð
Mynd: Getty Images
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo komst ekki á blað í þriðja leiknum í röð er lið hans, Al-Nassr, vann 3-1 sigur á Abha í 8-liða úrslitum Sádi-arabíska bikarsins í dag.

Tímabilið hjá Ronaldo hefur verið svolítið upp og niður í Sádi-Arabíu en hann skoraði ekki í fyrstu leikjunum áður en hann fann loks netmöskvana.

Hann skoraði fjögur í einum leik og þrennu í næsta en aftur er komin markaþurrð.

Ronaldo tókst ekki að skora þriðja leikinn í röð er lið hans vann Abha í 8-liða úrslitum bikarsins. Ronaldo fór af velli á 87. mínútur fyrir Anderson Talisca. Þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks pirraðist Ronaldo er hann var að sleppa í gegn. Hann tók boltann og þrumaði honum upp í loftið og fékk gult spjald fyrir.

Sjáðu atvikið hér

Þrátt fyrir það er Ronaldo með 8 mörk í 7 deildarleikjum og tvær stoðsendingar ofan á það.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner